Jóni Gerald er líka sama um þig.

Hann vill bara koma lúkunum ofan í vasana þína. Ef hann fer í samkeppni við Bónus þýðir það eingöngu að við getum fengið myglað grænmeti aðeins ódýrara, færri baunir í dósirnar frá ORA, ennþá verri þjónustu. Starfsfólkið bæði í Bónus og Sullukaupum mun fá verri laun, því þannig munu þeir halda verðinu niðri.

 Jón Gerald tók þátt í þessu öllu alveg eins og hitt sukkliðið, þangað til var stungið undan honum og hann settur út í kuldann. Þurfum við nýjan Björgólf sem kemur aftur til Íslands til að "bjarga" því?

Jón Gerald er alveg eins og hinir kapítalistarnir, honum er skítsama um allt nema völd og peninga.


mbl.is Jón Gerald mótmælir í Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband