Hættið að vernda spillinguna

Þessi könnun sem sýnir mikla hamingju lögreglunnar var gerð í mars. Nú er efnahagurinn hruninn og fólk sem vill breytingar öskrar á lögregluna þegar hún beitir ofbeldi til verndar spillingunni. Hvernig kæmi þessi könnun út núna? Maður sér það svo greinilega að meirihluti þeirra sem er skipað að verja óráðamenn vilja svo innilega ekki vera þarna. Geta ekki horfst í augu við mótmælendur. Geta ekki horfst í augu við það að félagar þeirra í efnahagsafbrotadeild þoli niðurskurð, meðan allur peningur sem rennur í þeirra deild fer í rafmagnsbyssur og meira gas. Geta ekki horfst í augu við það að þeir muni missa húsið sitt fyrir tilstuðlan þeirra sem þeir vernda.

Löggur! Látið flytja ykkur í umferðadeildina, þar gerið þið gagn. Þar uppskerið þið velvilja. Gangið í hverfisdeildir, hjálpið okkur að hjálpa börnunum okkar. Mótmælið niðurskurði á góðum verkum lögreglunnar. Hættið að vernda spillinguna!


mbl.is Streita lögreglumanna landshlutatengd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband