Gekk á hurð

Fréttaflutningur moggans alltaf jafn skemmtilegur. Mótmælandi er með brotinn handlegg eftir mótmæli. Hvað gerðist? Datt hann í hálkunni? Barði hann svo fast í trumbu að útlimurinn brotnaði? Gekk hann á hurð?

 Nei, andskotinn. Hann var maður yfir sextugu, sem var barinn af lögreglu með kylfu í áhlaupi lögreglunnar. Lögreglan var að flýja með fangana og barði hvern þann mann sem var fyrir. Voru þeir búnir með úðann eða voru þeir bara pirraðir og þurftu smá útrás, greyin?


mbl.is Eitt handleggsbrot eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband